Psalms 84

1Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta-sálmur. 2Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. 3Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði. 4Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn! 5Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. [Sela] 6Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu. 7Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun. 8Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon. 9Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela] 10Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða! 11Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra. 12Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik. [ (Psalms 84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér. ]
Copyright information for Icelandic